Ölfus

Langar að benda íbúum Ölfus á tvö atriði úr fundagerðum anað af bæjarstjórnarfuni nú  í apríl og svo svipuð tillaga sem ég flutti fyrir 2 og hálfu ári. 

  

Bæjarstjórn 27 apríl 2010

  Í fjárhagsáætlun fyrir árið 2009 eru settar 7.5. miljónir til þessa verks.  Nú í ársreikningi sveitarfélagsins fyrir árið 2009 er eignfærsla vegna þessa verkefnis tæplega 21.5 miljónir kr.

     Því óska ég eftir því að endurskoðendum sveitarfélagsins verið falið að fara yfir heimildir fv. bæjarstjóra til þessarar framúrkeyrslu.

     Einnig legg ég til að lögfræðingi sveitarfélagsins verði falið að fara yfir lögmæti þess að f.v. bæjarstjóri gaf eftir fyrir hönd sveitarfélagsins 1. veðrétt á jörðinni Hlíðarenda gegn bankaábyrgð".

     Tillagan samþykkt með 5 atkvæðum gegn 2 atkvæðum Sigríðar Láru og Ágústs Arnar.

 

Á bæjarráðsfundi 11 okt 2007 koma þessi tillag mín fyrir  

Ásgeir Ingvi Jónsson lagði síðan fram eftirfarandi tillögu:

"Undirritaður leggur til að endurskoðanda sveitarfélagsins verði falið að skrifa greinargerð um greiðslu á reikningi vegna borunar og veglagningar á Hlíðarenda. Þar sem um heimildarlaus útgjöld af hálfu bæjarstjóra er að ræða og um um er að ræða rannsóknir og veglagningu á einkalandi fyrir einkafyrirtæki. Þetta er því pólitísk spilling á háu stigi. Því er eðlilegt að endurskoðandi segði álit sitt áður en farið er með málið lengra"

Tillagan felld með 2 atkvæðum gegna atkvæði Ásgeirs.

Ásgeir lagði fram eftirfarandi bókun:

"Með því að fella þessu tillögu viðurkennir bæjarstjóri að hann sé að borga reikninga eftir
eigin geðþótta og án heimildar. Slíkt væri undir venjulegum kringumstæðum brottrekstrarsök en aðrir fulltrúar meirihlutans þegja þunnu hljóði og leyfa bæjarstjóra að ráðskast með hluti eins og honum sýnist".

Niðurstaða:

 Hvað hefur breyst á tveimur og hálfu ári jú bæjarstjórinn var rekin og komin nýr meirihluti en  stundum er skondið að sjá hvernig sumir skipta um skoðun, en hefði nú ekki verið betra fyrir suma að fá álit endurskoðanda strax 2007 ?

 


Framkvæmdarstjóri sveitarfélags.

Eitt er það sem mig langar til að benda á hér og  velta upp. Það er sú hefð sem hefur aukist hér á landi undanfarin 10 ár það er að bæjarfulltrúar taki að sér að vera framkvæmdarstjórar sveitarfélags.

Er þetta góð þróun ?

Nei segi ég það að færa þannig svo mikil völd í hendur á einu manni sama hvað nafni hann heitir er ekki gott. Mikið hefur verið rætt um að ráherrar eigi ekki að sitja á þingi það eigi að vera aðskilnaður á milli Alþingis og ríkistjórna en  er þetta þá í lagi í bæjarfélögum ?

Mín skoðun er sú að ráða á framkvæmdarstjóra sveitarfélaga svo eiga forsetar bæjarstjórnar að vera þeir sem koma fram fyrir hönd þeirra  sem eru kjörnir bæjarfulltrúa þannig næst betri aðskilnaður á þessu störfum og skilin a milli verða skýrari hvað á pólitíkin að gera og hvað eiga embættismenn að gera

Vissulega er þetta einstaklingsbundið hvort fólk veldur þessum hlutverkum en áhættan er of mikill ef einstaklingur velst í þetta starf sem ræður ekki við þetta tvöfalda hlutverk auk þess er alltaf betra að hafa skýr skil á milli hlutverka í stjórnsýslu. 

Því leist mér vel á þegar Einar Skúla vildi ráða ópólitískan borgarstjóra ef mynda ætti þjóðstjórnar í Reykjavík. 


Borgarstjórnarkosningar

Borgarstjórnarkosningar eru nú í lok maí en um hvað er kosið er oft spurt. ég er nú í fyrsta skipti á kjörskrá hér og er reyndar í 20. sæti á lista Framsóknarflokksins. En er ekki flokkakerfið orðið úrelt og best að kjósa bara Besta flokkinn ? Mér finnst þessi umræða á miklu villigötum, stjórnmálaflokkar verða ekki úreltir nema hægt sé að úrelda fólkið sem í þeim er. Flokkar geti hins vegar staðnað ef þeir taka ekki breytingum en hafa þeir gert það ?   Það er nú öruggt að þeir hafa allir tekið breytingu bara misjafnt í  hvaða átt þeir hafa farið. Framsóknarflokkur hefur tekið miklum breytingum á þeim 26 árum sem ég hef verið í honum svo mikið veit ég.  Í dag er nýtt fólk hjá framsókn  í Reykjavík, ég hef kynnst tveimur efstu mönnum í vetur og veit að  þar fer heiðarlegt fólk, mín tilfinning  segir að þau séu  í stjórnmálum af hugsjón en ekki til að koma sérhagsmunum áfram.  Helstu tíðindi vikunnar er fylgi Besta flokksins er það grín eða er það ekki grín !!  Jón er nú skemmtilegur maður en mikið rosalega er erfitt að taka slíkan mann alvarlega.   En verður Jón góður Borgarstjóri ef við viljum auka skemmtanagildi borgarstjórnarfunda væri það sniðugt,  en ég held að sé best að skemmtikraftar sjá um að skemmta en póltíkin sé betur komin í hendur á mönnum eins og Einari Skúla og félögum, vissulega er Jón betri en margir stjórnmálamenn í dag en leitum frekar upp fólk sem til er í að gera alvöru úr stjórnmálum og losum okkur við þá sem ekki hafa staðið sig vel.

Bæjarmál Ölfus

Mikið hefur gegnið á í mínu gamla sveitarfélagi þar sem ég sat í bæjarstjórn þar til í árslok 2008.  Nú eru sjálfstæðismenn klofnir og búið að reka bæjarstjórann.

Ég hef nú sagt svona í gríni að það tók mig ekki nema nokkra mánuði að sjá að bæjarstjórinn fór ekki að lögum og væri ekki að valda starfinu, en það tók sjálfstæðismenn 4 ár Smile

Ég gat nú ekki annað en brosað þegar formaður sjálfstæðisfélagsins skrifar grein í Sunnlenska í þessari viku,  þar talar hann um leikskólabygginu og nú sé þörf á ábyrgri fjármálastjórn. Þessi sami formaður er líka formaður íþróttarnefndar og ber ásamt fleirum ábyrgð á um 1500 milljóna fjárfestingu í íþróttamannvirkjum í Þorlákshöfn á kjörtímabilinu (þetta er um 1 milljón á mann í Þorlákshöfn) hefði nú ekki verið nær að láta duga að hafa íþróttamannvirkin 1200 fm í staðin fyrir 1800.  þá hefði nú verið svigrúm í nauðsynlegar framkvæmdir við leikskólann. en gott  um þetta í bili.


Norðlingaskóli

Bygging Norðlingaskóla hefur verið í gangi undanfarið,   hægt gengur nú að koma þessu upp en stefnan er  að taka hluta húsin í notkun í haust og klára svo á næsta ári.  Ekki er spurning um þörfin á þessari byggingu en hún á að hýsa bæði leik og grunnskóla,  í dag eru um 300 nemendur í Norðlingaskóla og um 100 í leikskóla í hverfinu. Biðlisti eftir leikskóla í hverfinu eru um 100 börn,  mörg þeirra eru á leikskólum í öðrum hverfum í borgini.  Þegar tölur um börn í hverfinu sért að börnum í Norðlingaskóla mun fjölga um 186 á næstu 6 árum  en 132 börn búa í hverfinu sem eru fædd 2008 og 2009  þörfin er því mikill.  Allur grunnskólin er rekin í bráðabyrðahúsnæði í dag.  Það er von mín að borgayfirvöld standi nú vel við bakið á þessum skóla og ekki komi til seinkunar á þessari framkvæmd. Allir flokkar vilja standa við bakið á börnum í borgini og er Framsóknarmenn þar eingin undantekning en á þeim lista er ég í 20. sæti.  Persónulega kyni mín af 2 efstu mönnum B lista framsóknarmanna gera það að verkum að ég teisti þeim vel til að koma þessari framkvæmdum áfram og þetta verið klárað á næsta ári.


er ekki rétta að fara að endurvekja þetta blogg

ég ætlaði nú að vera duglegri að nota þetta blogg til að koma skoðunum mínum á framfæri.  Er ekki best að ég lofi því hér og nú að ég verði duglegri næstu vikum að koma hér fram með skoðanir mínar á mönnum og málefnum. Nú nálgast kosningar til sveitarstjórnar og er ég virkur í tveimur sveitarfélögum er í 20 sæti hjá Framsóknarmönnum í Reykjavík og auk þess gegni ég formennsku í Framsóknarfélagi Ölfus þar sem menn bjóða fram B lista Framfarasinna svo það verður væntanlega talsvert að gera hjá mér í maí, en gott í bili til að endurvekja þessa síðu.


Tryggingakerfi

Er hugsum að nota þetta blogg aðeins til að koma á framfæri(ef einhver nennir að lesa) málefni sem ég hef skoðað talsvert undanfarin ár.  Í dag eru tryggingarmál þannig að við erum með almannatryggingar, lífeyristryggingar, tryggingarfélög og svo sjúkrasjóði stéttarfélaga.

Af hverju eru við að reka svona mörg kerfi ?  Ekki veit ég það og ætli viti það nokkur maður.   Af hverju sér löggjafinn ástæðu til að skilda okkur til að tryggja okkur ef við erum í bíll en ekki ef við erum að stunda áhugamál ?  svona spurningar spyr sá sem skoðað hefur þetta kerfi en fæ eingin svör.

Ég spyr t.d. afhverfu rekum við almannatryggingar og lífeyristryggingar er þetta ekki það sama sem þessi kerfi eru að gera má ekki spara með því að sameina eða stifta þessu upp á milli þeirra verkefnum. Við borgum þetta allt saman með sköttum eða lífeyrisgjöldum(annað nefna á sköttum)

 Eins spyr ég afhverfu setur ekki löggjafinn ekki lög um að allir séu slysatryggðir hjá tryggingarfélagi sama hvar og hvernig slysið á sér stað svo þú getir treyst því að þú fáir bættur ef þú verður fyrir slysi sama hvar það er. 

 Til hvers eru sjúkrasjóður stéttarfélaga er ekki betra að hafa bara almanntryggingar sem séum um þessa hluti líka.

 Ég get haldið lengi áfram hér en læt þetta gott heita í bili og bið fólk að hugsa aðeins þessi mál, tryggingar eru að vísu þess eðlis að við viljum helst ekki þurfa að nota þær en stundum ráðum við ekki hvað getur gerst á morgun hvorki fyrir okkur eða okkar nánustu svo mikið veit ég. 


einföldu kerfin

Er ekki það sem skiptir mestu mál að einfalda öll "kerfi" við erum alltaf að gera þau flóknari og flóknari til að reina að koma í veg fyrir svindlað  sé á kerfum.  svo eyðum við fullt af peningum í að hafa eftirlit með þessu í mínum huga er málið.  Einfalt kerfi einfalt að svindla og þá er líka auðvelt að sjá þegar þú svindlar !   Þegar menn verða uppvísir að svindli þá á að taka hart á þeim.  Hitt er svo okkar sameiginlegt vandamál að ef okkur finnst lög og reglur vitlaus þá er allt í lagi að brjóta þau virðing Íslendinga fyrir lögum og reglum er enginn.
mbl.is Mikilvægt að styrkja eftirlit með bótakerfum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Blaðamenn hafnir yfir lög ?

Þá er það ljóst að blaðamenn þurfa ekki að fara að lögum í landinu.

ég vil að allir fari að lögum ef okkur líkar þau ekki þá eiga Alþingismenn að breyta þeim. Ef hver og einn á að ákveða hvað lög á að fara eftir og hvað ekki þá lendum við í vandræðum.


mbl.is Kæru á hendur Agnesi vísað frá
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

merkilega fétt um ekki neitt

Tilhvers er verið að segja okkur núna að fréttir sem koma í haust séu verstu fréttir sem nokkur nefnd hafi þurft að flytja, eru þeir þá verri en það sem nefndi er að rannsaka ?
mbl.is Verri fréttir en nokkur nefnd hefur þurft að færa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband